2440

6 Miðvikudagur 14. mars 2018 DAGSKRÁIN - Fréttablað Suðurlands A ðalfundur Garðyrkju- félags Árnesinga verður haldinn á vorjafndægrum, þriðjudaginn 20. mars, kl. 19:30 í húsnæði Rauða krossins að Eyravegi 23 á Selfossi. Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf. Að fundarstörfum loknum flytur Embla Heiðmarsdóttir erindi sitt „ Skrautgróður til ánægju og augnayndis - áskoranir og möguleikar ”. Í fyrirlestrinum sýnir Embla litríkar og upplýsandi myndir sem hún hefur aflað víða. Erindið, sem fjallar um fjölæran skrautgróður, flutti Embla þann 18. janúar sl. í sal Garðyrkjufélags Íslands í Síðu- múla, fyrir félagsmenn og gesti Fékk menningarsjokk sem Flóamaður í Flórída segir lestrarhesturinn Guðmundur Torfi Heimisson Guðmundur T. Heimisson er lektor í sálfræði við Háskólann á Akureyri. Hann er orðinn allra þjóða kvikindi en þó Flóamaður fyrst og fremst og alinn upp í Flóanum. Fluttist síðan í )D[DÀyDQQ RJ YDUèL VtèDQ W SXP iUDWXJ t 7DPSDÀyD Þegar þetta er skrifað býr hann í Glerárþorpi nálægt Akureyri og hefur ekki vanist ìYt Dè E~D t ¿UèL Hvaða bók ertu að lesa núna? Ég er oftast með nokkrar í gangi í vinnunni en sjaldan með nema eina sem frítímalesningu. Var að klára smásagnasafnið The Illustrated man eftir Ray Bradbury. Hafði aldrei lesið neitt eftir hann og langaði að prófa. Nýbyrjaður á The Show that never ends. The rise and fall of prog rock eftir David Weigel. Það tengist tónlistaráhuganum. Næsta bók verður sennilega annað hvort Just my type. A book about fonts HIWLU 6LPRQ *DU¿HOG eða Mannahatta eftir Eric W. Sanderson. Just my type höfðaði til mín því ég hef áhuga á letri og hvernig það er skynjað og hannað. Hvernig texti getur gert allt frá því að koma upplýsingum á framfæri upp í að búa til stemningu og koma fólki á fjarlæga staði. Mannahatta er doðrantur og fjallar um jarðsögu Manhattan á mjög lifandi hátt. Ég hef engan sérstakan áhuga á jarðsögu en sá hana í bókabúð í New York, fannst kápan forvitnileg og gat ekki lagt hana frá mér. Lendi reyndar oft í því að rekast fyrir tilviljun á bækur um alls konar efni sem ég vissi ekki að mér þætti forvitnilegt. Ein hét American Green : The obsessive quest for the perfect lawn eftir Ted Steinberg. Sú fjallar um menningarfyrirbærið og stöðutáknið sem iðagrænn og vel til hafður blettur er. Stórskemmtileg. Vinnubæk- urnar sem eru opnar á borð- inu núna heita Handbook of test development, Scale development og Developing and validating test items . Svo er ég að læra á tölfræðiforritið R til að geta kennt á það. Ekki kannski æsispennandi – maður veit hvernig þær enda – en þær JDJQDVW PpU t VWDU¿QX Hver er uppáhalds barnabókin þín? Kannski helst Páll Vilhjálmsson eftir Guðrúnu Helgadóttur vegna orðaleikjanna í henni. Hef samt ekki þorað að lesa hana síðan á unglingsárunum þegar ég varð meðvitaður um sósjalrealisma í íslenskum bókmenntum. En hvernig eru lestrarvenjur þínar? ë U HUX GiOtWLè NDÀDVNLSWDU Ég les allan daginn í vinnunni, annað hvort af blaðsíðum eða W|OYXVNMi RJ YLQQ \¿UOHLWW IUHNDU langan dag. Þegar ég kem heim er ég oft orðinn mettaður og sæki frekar í léttara efni annað hvort skemmtilegan fróðleik eða reyfara með húmor. Eða eitthvað annað en lestur. Held mikið upp á Carl Hiaasen og Tim Dorsey. Ég sæki líka í alls konar bækur um efni sem virðast koma eins og skrattinn úr sauðarleggnum og opna sýn inn í heima sem ég vissi lítið XP 6OHSSL ÀHVWX |UODJD RJ HèD magnþrungnu og hispurslausu. /HLèLVW VYROHLèLV \¿UOHLWW PHè nokkrum undantekningum sem ég er búinn að gleyma. Býrðu yfir áhugaverðri lestrarminningu? Tourist season eftir Carl Hiaa- sen og Florida roadkill eftir Tim Dorsey höfðu báðar mikil áhrif á mig. Mér var bent á að lesa þessar bækur þegar ég var í menningarsjokki sem Flóa- maður í Flórída enda báðir höfundarnir þaðan. Þessar bækur gerast á Flórída og eru reyfarar með gálgahúmor. Þegar ég las þær og heimfærði aðstæður þeirra upp á eigin reynslu varð auðveldara fyrir mig að sjá það fyndna í furðu- legheitunum sem ég upplifði nánast á hverjum degi. Bæk- urnar opnuðu alveg nýja sýn á staðinn sem á móti gagnaðist mér við að aðlagast. Slíkur er kraftur skáldskaparins þó reyfari sé. Nú þyrftu Hiaasen eða Dorsey að taka sig til og skrifa bók sem gerist á Akur- eyri. En að lokum Goðmundur er til heimur án bóka? Að minnsta kosti ekki án ritmáls. Ég þori ekki að spá hvað verður um bækur framtíðarinnar. Kannski detta þær út og koma aftur í tísku eins og vínylplöturnar. *XèPXQGXU 7RU¿ +HLPLVVRQ Aðalfundur Garðyrkjufélags Árnesinga þeirra. Var vel mætt á fræðslu- kvöldið og þótti sérlega vel heppnaður fyrirlestur hjá Emblu. Árið 2016 skrifaði Embla Bs. ritgerð á sviði Umhverfisskipu- lags við Landbúnaðarháskóla Íslands, um möguleika í notkun fjölæringa á opnum svæðum bæjarfélaga. Embla stundaði verknám í Englandi þar sem hún lagði stund á ræktun og skipulag gróðurs með áherslu á fjölæringa. Síðustu misseri hefur hún verið í verknámi í Gróðrarstöðinni Mörk. Embla hefur ríkan áhuga á að auðga áhuga Íslendinga í notkun á fjölærum garðplöntum og bjóða náttúrunni lausari taum í einkagörðum og á opinberum svæðum. Bóndarósir Aðstoðarskólastjóri og talmeinafræðingur Fræðslusvið auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður, þ.e. stöðu aðstoðarskólastjóra í Valla- skóla á Selfossi og stöðu talmeinafræðings hjá skólaþjónustu Árborgar. Við leitum að metnaðar- fullum einstaklingum með brennandi áhuga á starfi í skólum. Í sveitarfélaginu er unnið að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Lögð er áhersla á faglega forystu í anda lærdómssamfélagsins, snemmtæka íhlutun, samstarf skólaogstofnanaumumbótastarf ogþróun úrræða fyrir börn. Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 9 þúsund íbúar, þar af um 2000 börn í fimm leikskólum og þremur grunnskólum. Í Vallaskóla eru um 585 nemendur í 1.-10. bekk. Virðing, þekking og lífsgleði eru einkunnarorð skólans. Aðstoðarskólastjóri Vallaskóla Meginverkefni: • Staðgengill skólastjóra • Vinnur ásamt samstarfsfólki að framþróun í skólastarfi og stefnumótun • Vinnur ásamt öðrum skólastjórnendum að daglegri stjórnun skólans og skipulagningu skólastarfsins Menntun og færnikröfur: • Grunnskólakennararéttindi áskilin. • Menntun og reynsla í stjórnun æskileg • Forystu- og stjórnunarhæfileikar • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum • Skipulagshæfileikar • Frumkvæði í starfi Vegna námsleyfis skólastjóra veitir fræðslustjóri upplýsingar um starfið. - Ráðning er frá og með 1. ágúst 2018. Talmeinafræðingur hjá skólaþjónustu Ráðning frá 1. ágúst 2018 eða eftir samkomulagi, bæði hvað varðar starfshlutfall og upphaf ráðningar. Helstu verkefni og menntunarkröfur Verkefni á sviði talmeina- og málþroskavanda hjá börnum, meðal annars vinna við skimanir, málþroskagreiningar, ráðgjöf, fræðslu og talþjálfun. Samstarf við annað starfsfólk skólaþjónustu, kennara, nemendur og foreldra. Jafnframt við fleiri talmeinafræðinga í Árborg sem sinna talþjálfun barna. Við leitum að talmeinafræðingi sem býr yfir góðri hæfni í mannlegum samskiptum, reynslu og menntun sem nýtist í starfi. Upplýsingar veitir Þorsteinn Hjartarson, fræðslu- stjóri, sími 480 1900, 852 3918 og thorsteinnhj@ arborg.is . Áhugasamir geta sent tölvupóst á skolathjonusta@ arborg.is eða póst á fræðslusvið Árborgar, Austur- vegi 2, 800 Selfoss. Umsóknarfrestur er til 6. apríl 2018. Starfið hæfir jafnt körlum sem konum. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Launanefndar sveitar- félaga.

RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz