2440
Miðvikudagur 14. mars 2018 15 DAGSKRÁIN - Fréttablað Suðurlands Auglýsing um tillögu að deiliskipulagsbreytingu Austurbyggðar á Selfossi Samkvæmt 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 auglýsir bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar tillögu að breyttu deiliskipulagi Austurbyggðar á Selfossi í Sveitarfélaginu Árborg. Deiliskipulagsbreytingin nær til reits Q og er eftirfarandi: Götuheiti Álfalands er breytt í Asparland. Þrjár botlangagötur við Asparland, Bjarmaland og Fagraland eru gerðar að beinum götum. Lóðir Huldulands 11 og 13 eru minnkaðar. Einbýlishúsalóðirnar Fagraland 9, 11 og 13 verða tvær parhúsalóðir Fagraland 9–11 og Fagraland 13–15. Einbýlishúsalóðirnar Fagraland 16 og 18 verða raðhúsalóð Fagraland 16–22. Raðhúsalóðin Bjarmaland 2–10 verður raðhúsalóðin Bjarmaland 2–8. Parhúsalóðin Bjarmaland 12-14 verður raðhúsalóð Bjarmaland 10–16. Einbýlishúsalóðirnar Bjarmaland 16 og 18 verða raðhúsalóð Bjarmaland 18–24. Einbýlishúsalóðirnar Bjarmaland 9, 11 og 13 verða tvær parhúsalóðir Bjarmaland 9–11 og Bjarmaland 13–15. Einbýlishúsalóðirnar Asparland 16 og 18 verða raðhúsalóð Asparland 16–22. Einbýlishúsalóðirnar Asparland 9, 11 og 13 verða parhúsalóðir Asparland 9–11 og Asparland 13–15. Einnig eru gerðar breytingar á greinum 4, 5.2 og 5.5 í greinargerð. Teikningar ásamt greinargerð vegna tillögunnar munu liggja frammi á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa að Austurvegi 67 Selfossi frá og með fimmtudeginum 15. mars 2018 til og með fimmtudagsins 26. apríl 2018. Öllum er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila athugasemdum rennur út 26. apríl 2018 og skal þeim skilað skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa á skrifstofu hans að Austurvegi 67, 800 Selfossi. Á sama tíma er teikning og greinargerð til kynningar á heimasíðu Árborgar www.arborg.is þar sem hægt er að skoða tillöguna og senda athugasemdir til skipulags- og byggingarfulltrúa á netfangið skipulag@arborg.is eða bardur@arborg.is . Virðingarfyllst, Bárður Guðmundsson skipulags- og byggingarfulltrúi L augardaginn 10. mars voru opnaðar tvær nýjar sýningar í Listasafni Árnesinga í Hvera- gerði. Annars vegar sýningin Þjórsá, sem er innsetning og XPKYHU¿VYHUN HIWLU %RUJKLOGL Óskarsdóttur og hins vegar Undirstaða og uppspretta – sýn á safneign þar sem verk í eigu safnsins eru til skoðunar. Laugardaginn 17. mars tekur Listasafn Árnesinga þátt í menn- ingarmars Hrunamanna með því að efna til dagskrár, en Hruna- mannahreppur er eitt af átta sveitarfélögum Árnessýslu sem eiga og reka safnið. Listasmiðja fyrir fjölskylduna verður í gangi kl. 13–16 þar sem Kristín Þóra Guðbjörnsdóttir myndmennta- kennari leiðbeinir og kl. 14 mun Inga Jónsdóttir sýningarstjóri ganga um sýningarnar og ræða um þær við gesti. Nánari upp- lýsingar má sjá á vefsíðu safns- ins www.listasafnarnesinga.is . Um nokkurn tíma hefur Borghildur rannsakað ýmis- legt sem tengist fjölskyldusögu hennar og skilað niðurstöðunum í formi margbreytilegra lista- verka sem oft má skilgreina sem XPKYHU¿VOLVW Ë LQQVHWQLQJXQQL Þjórsá „...miðlar hún birtu, lit, KUH\¿QJX KOMyèXP iIHUè RJ |èUXP HLJLQOHLNXP XPKYHU¿VLQV sem hafa sterkt fagurfræðilegt DèGUiWWDUDÀ ³ VHJLU P D t JUHLQ eftir Æsu Sigurjónsdóttur sem birtist í sýningarskránni. Verkið felur í sér vinsamlega hvatn- ingu til þess að læra að þekkja og virða söguna og landið. Með Tvær nýjar sýningar í Listasafninu – Hrunamannadagur, leiðsögn og leiksmiðja 17. mars því að setja sýninguna Þjórsá upp samhliða sýningu á verkum úr safneign Listasafns Árnes- inga verða spurningar um mat á verðmætum og gildi varðveislu enn áleitnari. Hvað felst í þeirri siðferðislegu og samfélagslegu ábyrgð að skila verðmætum til komandi kynslóða og hver eru þau verðmæti? Í safneign Listasafns Árnes- inga eru varðveitt um það bil 550 listaverk. Með sýningunni Undirstaða og uppspretta – sýn á safneign er sjónum einkum beint að þeim verkum sem nýlega hafa bæst í safneininga en einnig að nokkrum öðrum verkum sem ÀHVW KDID HNNL YHULè VêQG ièXU í safninu. Heiti sýningarinnar vísar í það að undirstaða safna- starfs er safneignin og hún er varðveitt til þess að vera öðrum uppspretta til frekari sköpunar bæði nú og í framtíðinni. Á sýn- ingunni eru verk eftir jafn ólíka listamenn og Einar Jónsson (1874-1954), Ásgrím Jónsson (1876-1958), Kristinn Péturs- son (1896-1981), Jóhann Briem (1907-1991), Valtý Pétursson (1919-1988), Guðmund Bene- diktsson (1920-2000) og Ólaf Lárusson (1951-2014) þar sem ÀHVW YHUNLQ HUX HIWLU 9DOWê 6WHI - ánsson úr nýlegri gjöf til safn- ins úr Listaverkasafni hans. Á sýningunni liggja einnig frammi bækur sem ritaðar hafa verið um myndlist þessara listamanna og gestir sýninganna eru líka hvatt- ir til þess að láta verkin verða hvata eigin sköpunar með því að bjóða þeim ýmis áhöld til skissugerðar. Þátttaka í listasmiðjunni og aðgangur að safninu er ókeypis og allir velkomnir, Hrunamenn sem og aðrir. H elgina 17.–18. mars verður söngsmiðja Unglingakórs og barnakórs Selfosskirkju haldin ásamt konum úr kirkjukórnum, undir heitinu „Syngjandi stúlk- ur“. Söngsmiðjan er unnin í samvinnu við Kristjönu Stefáns- dóttur sem útsett hefur lög fyrir einsöngvara og kvennaraddir. Efnisskráin er fjölbreytt blanda af gömlum og nýjum dægurperl- um auk frumsamins efnis. Söngsmiðjunni lýkur klukk- an 17.00, sunnudaginn 18. mars, með tónleikum í Selfosskirkju. Auk Kristjönu koma fram með kórunum Daði Birgisson pí- anóleikari og félagarnir Magn- ús Kjartan, Sigurgeir Skapti og Marinó Geir úr Stuðlabandinu. Stjórnandi sameinaðs kvenna- kórs er Edit Anna Molnár. Kristjana Stefánsdóttir og söngsmiðjan Syngjandi stúlkur í Selfosskirkju Kristjana Stefánsdóttir. Skrifstofur embættis sýslumannsins á Suður- landi verða lokaðar föstudaginn 16. mars nk. vegna starfsdags. FERMINGAR 2018 GJAFAVÖRUR Í ÚRVALI Austurvegi 65, 800 Selfossi, s: 580 0070
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz