2440
Miðvikudagur 14. mars 2018 13 DAGSKRÁIN - Fréttablað Suðurlands U m 100 manns mættu á héraðsþing HSK sem haldið var í Þorlákshöfn sl. laugardag. Á þinginu var lögð fram vegleg ársskýrsla um störf sambandsins á liðnu ári, ásamt því að í skýrsl- unni eru stutt yfirlit um störf aðildarfélaga sambandsins. Öll stjórn HSK var endurkjörin utan þess að Jón Þröstur Jóhannes- son Umf. Selfoss var kosinn nýr varastjórnarmaður í stað Gísla Ö. Brynjarssonar. Stjórnina skipa þau, Guðríður Aadnegard for- maður, Guðmundur Jónasson gjaldkeri, Helgi S. Haraldsson varaformaður, Anný Ingimars- dóttir ritari og Baldur Gauti Tryggvason meðstjórnandi. Í varastjórn eru Gestur Einarsson, Olga Bjarnadóttir og Jón Þröstur Jóhannesson. Árni Þorgilsson fyrrvarandi formaður HSK var sæmdur gull- merki HSK fyrir sín störf fyrir sambandið í áratugi. Örn Guðna- son varaformaður UMFÍ var sæmdur gullmerki ÍSÍ og silfur- merki ÍSÍ hlaut Fanney Ólafs- dóttir Umf. Þjótanda. Jón M. Ívarsson Umf. Þjótanda var sæmdur gullmerki UMFÍ og starfsmerki UMFÍ hlutu þau Árni Þór Hilmarsson Umf. Hruna- manna, Þorbjörg Vilhjálmsdóttir Íþrf. Suðra og Jóhannna Hjartar- dóttir Umf. Þór. Niðurstöður reikninga sam- bandsins sýndu 997.236 kr. hagnað sem varð af rekstri sam- bandsins á síðasta ári. Skýrist það m.a. af stærstum hluta af meiri lottótekjum en áætlanir gerðu ráð fyrir. Góðar umræður voru í nefndum þingsins og fjöl- margar tillögur voru samþykktar. Íþróttafólk í 20 íþróttagreinum sem stundaðar eru innan sam- bandsins var heiðrað og úr þeirra hópi var júdómaðurinn Egill Blöndal úr Umf. Selfoss, valinn íþróttamaður HSK 2017. Ýmis sérverðlaun voru veitt á þinginu. Umf. Selfoss var stiga- hæsta félagið, frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss fékk unglingabikar HSK og fimleikadeild Hamars hlaut foreldrastarfsbikar HSK. Þá var Kjartan Kjartansson í Hvera- gerði valinn öðlingur ársins. Samkvæmt venju fór sleifar- keppni HSK fram á þinginu og þar sigraði Svanur Bjarnason Golfklúbbi Selfoss og Guðmund- ur Jónasson gjaldkeri HSK var útnefndur matmaður þingsins. Miklar og góðar umræður í nefndum á héraðsþingi HSK í Þorlákshöfn Frá afhendingu sérverðlauna. F.v.: Guðríður Aadnegard, formað- ur HSK, Jóhanna Hjartardóttir, fimleikadeild Hamars, með foreldra- starfsbikar, Helga Sigurðardóttir og Dýrfinna Sigurjónsdóttir, frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss með unglingastarfsbikar og Guð- mundur Kr. Jónsson, Umf. Selfoss með bikar fyrir stigahæsta félag. Í samræmi við reglugerð nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun, m.s.br ., eru eftirfarandi starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65, Sel- fossi og á skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn. · Starfsleyfisskilyrði fyrir Fiskafurðir umboðssala ehf. vegna framleiðslu gæludýrafóðurs hjá Icelandic Pet IFEX að Hafnarskeiði 28-30, 815 Þorlákshöfn Starfsleyfisskilyrðin eru einnig aðgengileg á heimasíðu HSL, www.hsl.is Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu HSL að Austurvegi 65, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 11. apríl næstkomandi. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands ,*+,)- ,) 2 $ '**! 2 =%! 2 hsl@hsl.is Starfsleyfi til kynningar Sími 482 1944 - selfoss@prentmet.is Fermingarnar nálgast Við setjum upp og prentum boðskort fyrir fermingar Örn Guðnason, varaformaður UMFÍ, (t.v.) afhenti Árna Þór Hilmarssyni, Þorbjörgu Vilhjálmsdóttur og Jóhannu Hjartardóttur starfsmerki UMFÍ. Svanur Bjarnason var útnefndur sleifarhafi HSK eftir jafna og spennandi keppni. Hér eru keppendur sem kepptu í púsli. Guðríður Aadnegard, formaður HSK og Kjartan Kjartansson öðlingur ársins. Gunnar Bragason, gjaldkeri ÍSÍ (t.v.), afhenti Fanney Ólafsdóttur silfur merki ÍSÍ og Erni Guðnasyni gullmerki ÍSÍ. Árni Þorgilsson sem hlaut gullmerki HSK og Guðríður Aadnegard formaður HSK. Örn Guðnason, varaformaður UMFÍ (t.v.), afhenti Jóni M. Ívarssyni gullmerki UMFÍ.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz