2440
12 Miðvikudagur 14. mars 2018 DAGSKRÁIN - Fréttablað Suðurlands Efni sendist á: selfoss@prentmet.is H elgina 3.–4. mars sl. fór fram Bikarmót unglinga í hóp- fimleikum í Vallaskóla á Selfossi. Mótið var eitt það fjölmennasta sem hefur verið haldið, með yfir 900 keppendum frá 13 félögum. Mótið fór vel framogmikil ánægja meðal keppenda og þjálfara. Selfoss átti 12 lið á mótinu. Í 5. flokki, sem samanstendur af stúlkum sem verða 9 ára á þessu ári, voru keppendur að keppa í fyrsta skipti í vetur. Stúlkurnar í Selfoss 1 náðu þar þeim glæsilega árangri að vera í 2. sæti af 14 liðum. Selfoss átti tvö önnur lið í flokknum, Selfoss 2 og Selfoss 3 sem áttu einnig góðan dag og enduðu í 10. og 14. sæti. Í 4. flokki voru 28 lið skráð til keppni og átti Selfoss 4 lið, í 3 deildum. Selfoss 1 keppti í A- deild og lenti þar í 5. sæti. Selfoss 3 keppti í B-deild og lenti þar í 4. sæti. Í C-deild átti Selfoss 2 lið, Selfoss 2 og Selfoss 4, sem röð- uðu sér í 2. og 3. sætið. Selfoss 2 fer því upp um deild og keppir í B-deild á næsta móti, sem er Íslandsmót unglinga í vor. Í 3. flokki var keppt í 3 deild- um, en Selfoss átti 2 lið í B-deild og 1 lið í C-deild. Í B-deildinni varð Selfoss sigursælt, en Selfoss 1 sigraði þá deild og keppir því í A-deild á næsta móti. Selfoss 3 varð í 3. sæti - glæsilegur árangur hjá 3. flokks stúlkum. Í C-deild- inni átti Selfoss 2 ágætan dag enduðu þar í 7. sæti. Drengjaliðum í fimleikum er sífellt að fjölga, en nú um helgina kepptu 5 lið í eldri drengjaflokki og 5 lið í yngri drengjaflokki. Selfoss átti 1 lið í hvorum flokki. Selfoss yngri lenti í 5. sæti og Selfoss eldri nældi sér í annað sæti og silfur um hálsinn. Frábært var að sjá hvað fim- leikarnir blómstra á Selfossi, en Selfoss var annað tveggja félaga sem átti flest lið á mótinu. Við óskum öllum iðkendum til ham- ingju með helgina og þökkum for- eldrum, þjálfurum, dómurum og stjórn fyrir vel unnin störf. Bikarmót unglinga í hópfimleikum á Selfossi G uðmundur Kr. Jónsson á Selfossi var kosinn heiðurs- formaður HSK á héraðsþingi HSK sl. laugardag. Guðmundur Kr. varð snemma mjög öflugur félagsmálamaður og tók virkan þátt í starfi Umf. Sel- foss og var m.a. formaður frjáls- íþróttadeildar Umf. Selfoss árin 1968- 1979 og síðar gegndi hann stöðu vallarstjóra og fram- kvæmdastjóra félagsins. Hann hefur verið formaður Umf. Selfoss frá 2014. Hann var kosinn formaður HSK árið 1981 og hélt um stjórnar- taumana í átta ár með miklum myndarskap. Guðmundur Kr. tekur enn virkan þátt í störfum sambands- ins. Hann er t.a.m. mjög eftirsótt- ur sem þulur á frjálsíþróttamót HSK enda röggsamur og vel til forystu fallinn. Í bókinni HSK í 100 ár segir umstörf Guðmundar: „Það er á engan hallað þótt hann sé talinn einn af dugmestu og starfsömustu foringjum Héraðs- sambandsins Skarphéðins.“ Guðmundur Kr. er þriðji í röð- inni sem kosinn er heiðursfor- maður HSK. Sigurður Greipsson var kosinn á þingi árið 1966 og Jóhannes Sigmundsson var kos- inn á þingi árið 2011.“ HANDKNATTLEIKUR Selfoss tap- aði fyrir Fram í undanúrslitum í Coca Cola-bikarnum eftir ótrú- lega dramatík í Laugardals- höllinni þar semvítakastkeppni þurfti til að knýja fram úrslit. Leikurinn var jafn lengst af fyrri hálfleiks en undir lok hans skoruðu Selfyssingar þrjú mörk í röð og leiddu 15-12 í leikhléi. Framarar voru beittari í upphafi seinni hálfleiks, jöfnuðu 17-17 og þremur mín- útum fyrir leikslok var staðan 21-23 fyrir Fram. Selfyssingar skiptu þá yfir í 3-3 vörn og náðu að jafna þegar tæp mínúta var eftir 23-23 og því þurfti að framlengja. Selfyssingar hársbreidd frá úrslitaleik Eftirhnífjafnaframlengingu var staðan ennþá jöfn 27-27 og því varð að grípa til vítakeppni. Þar skoruðu Framarar úr öllum sínum vítaskotum en Teitur Örn Einarsson skaut í stöng úr sínu skoti og Fram tryggði sér þar með sæti í úrslitaleiknum þar sem þeir steinlágu gegn nágrönnum okkar í ÍBV. Mörk Selfyssinga skoruðu Teitur Örn 8/1, Elvar Örn Jóns- son og Atli Ævar Ingólfsson 6/1, Árni Steinn Steinþórsson 5/1, Haukur Þrastarson 2/1, Richard Sæþór Sigurðsson og Sverrir Pálsson 1. Sölvi Ólafs- son varði 15 skot í markinu og var með 35% markvörslu. Sölvi stóð sig vel í marki Selfyssinga og varði 15 skot í leiknum. Ljósmynd: Guðmundur Karl. Selfyssingar bikarmeistarar í 4. flokki Selfoss varð um helgina bikarmeistari í handknattleik í 4. flokki karla yngri eftir sigur á Gróttu, 26-22. Ljósmynd: HSÍ. Guðmundur Kr. Jónsson kjörinn heiðursformaður HSK Guðmundur Kr. Jónsson, nýkjörinn heiðursformaður HSK.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NDk5NDcz